Myndir

Djamm

Ég byrjaði að taka myndir á djamminu árið 2000. Þá var ég með filmuvél, framkallaði myndirnar og skannaði þær inná tölvuna. Næst var farið útí að kaupa sér stafræna upptökuvél sem gat einnig tekið ljósmyndir. Geiri.net fór þá hægt og rólega af stað og voru afköstin aðeins meiri þar sem maður þurfti ekki að bíða eftir framköllun og skanni. Áður en ég vissi af var síðan orðinn þokkalega vinsæl. Ég fór í fréttaviðtal fyrir einhvern pistil um djammmyndir í Fókus og varð það til þess að vinsældir geira.net urðu enn meiri. Stutt eftir það höfðu Núlleinn.is samband við mig og fengum mig yfir til sín til að taka myndir. Á því tímabili var farið að rukka fyrir lén og hætti ég því með Geiri.net. En núna, eftir tæp 5 ár, er ég kominn aftur og ætla því að leyfa þessum myndum sem ég tók í gegnum árin að njóta sín hér.

ATH!! Í gegnum árin var ég beðinn um að taka mikið af myndum útaf síðunni og það er ómögulegt fyrir mig að muna hvaða myndir það voru. Ef þið rekist á einhverja mynd sem ykkur finnst að ætti ekki að birta skal sá hinn sami senda mér ábendingu um það.

Almennt

Maður tók nú ekki bara myndir af djamminu. Myndavélin var oftast með mér þegar við strákarnir fórum eitthvað út að fíflast. Eftir að hafa verið að taka myndir á djamminu í 2-3 ár þá fór Hér fyrir innan eru myndir af hinu og þessu sem ég hef tekið myndir af í gegnum tíðina.  Utanlandsferðir, sumarbústaðaferðir o.s.frv.

Graffity

Vinir mínir áttu það til að spreyja á veggi og gat ég ekki annað en tekið einhvern vegin þátt og það gerði ég með því að taka myndir af listinni.  

Könnun

Gott verður?
Þokkalega
Ó Já
Tjahh.. sæmilegt
Nei..
Half Life 2 Einkunn
Þetta er í þriðja skiptið sem ég klára þennan geysivinsæla leik. Í fyrsta skiptið kláraði ég le...
Meira »

Alpha Dog Einkunn
Mig minnir að ástæða fyrir því að horfa á þessa mynd væri að Hildi langaði að sjá Justin Timber...
Meira »


Byggir á LISA .NET  - Vefumsjónarkerfi frá INNN


Leit